Hlynur Ben hefur átt farsælan sólóferil ásamt því að starfa með hljómsveitunum Mono, Rufuz, Búálfar, Gleðisveit Ingólfs, Dio Tríó, Hlynur Ben og Upplifun og Helter Skelter.
Svo einhverjar séu nefndar.
Fjölbreyttur ferill hans spannar rúma þrjá áratugi, bæði sem lagahöfundur og flytjandi.
Lifandi tónlistarflutningur hefur þó verið aðalsmerki Hlyns, sem byrjaði að koma fram ungur að aldri í heimabænum, Neskaupstað. Síðan þá hefur hann spilað á flestum sviðum landsins og víða erlendis á tónleikunum, böllum og öðrum skemmtunum.
Einnig hefur Hlynur komið að tónlistartengdri sjónvarps- og útvarpsþáttagerð í gegnum tíðina.
Á forsíðu má sjá tímalínu með hinum ýmsu útgáfum og verkefnum Hlyns í gegnum tíðina.
Þar eru þó undanskildar nánast allar framkomur Hlyns sem trúbador, veislustjóri og með ball hljómsveitum sem fóru fram oft í viku á árunum 2000 til 2020.