From the recording Vesturgata

Lyrics

Andartakið titrar undir himnana sal.
Aftur eru töfrar við völd.
Andrúmsloftið rafmagnað því
þetta er bara þannig kvöld.

Tíminn mætti gleyma sér og stoppa um stund.
Rétt á meðan við erum hér.
Lífið er svo yndislegt og
ég vil eiga það með þér.

Ég elska þig.
Takk fyrir allt.
Takk fyrir mig.

Það eru svona stundir sem að lífinu ljá
töfraljóma minningum í
og jafnvel kaldar sálir byrja að
brosa út í eitt á ný.

Ég elska þig.
Takk fyrir allt.
Takk fyrir mig.

Ég lít í kringum mig
og einhvern veginn finn á mér
í margar aldir munu
raddir okkar bergmála hér.

Ég elska þig.
Takk fyrir allt.
Takk fyrir mig.