From the recording Vesturgata

Lyrics

Ég veit að við höfum á örfáum dögum
kynnst heldur lítið en ég elska þig.
Þú verður mín fyrsta ef að þú vilt'ða.
En til þess þú verður að yrða á mig.

Ég blés fast í stútinn og nú ertu þrútin.
Mig kitlar í kútinn er ég horfi á þig.
En eitt finnst mér skrýtið,
þú segir svo lítið
og horfir með hálfdaufum augum á mig.

Kannski er best að við kynnumst betur.
I örfáa mánuði sjáum hvað setur.
Og ef að þú vilt mig næsta vetur
þá göngum við alla leið.