From the recording Vesturgata

Lyrics

Ég fór einn út á bar
til að hitta vini mína þar.
Kerlingin varð alveg snar
og frekjukast hún tók.

Hún rauk brjáluð í náttsloppinn
og arkaði niður á pöbbinn
til að sækja verri helminginn.
Og þar ég sat er hún kom inn.

Ég sagði henni að ég færi ekki heim.
Hún sagði: „Þetta er búið geim!“
Barþjónninn sagði: „Æ, ert þú einn af þeim“
Og þá sagði ég:

„Allir hafa sinn djöful að draga.
Þannig er sú leiðinda saga.
Allir hafa sinn djöful að draga.
Ef þú dregur mig þá skal ég draga þig.“

Daginn eftir vaknaði ég.
Þvílíka sjón hafði ég aldrei séð.
Hún hafði fengið nóg af mér
svo hún köttinn skaut.

Til hjónaráðgjafa fórum á fund
og rifumst þar um dágóða stund.
Þreyttur eftir minn síðdegisblund
og dálítið úrillur svo ég sagði:

„Allir hafa sinn djöful að draga.
Þannig er sú leiðinda saga.
Allir hafa sinn djöful að draga.
Ef þú dregur mig þá skal ég draga þig.“

Du rudd u ru duru
ru duru rudd uru du.
Du rudd u ru duru
ru duru rudd uru du.