From the recording Leiðin heim

Lyrics

Ég er kominn aftur heim.
Ég vil hætta að elta drauga þar til verð ég einn af þeim.
Og ég finn það inni í mér,
þó ég þvælist út um allan heim ég enda alltaf hér.

Þvílíkt frelsi. Þvílík gjöf.
Að ég fái að standa uppréttur en liggi ekki í gröf.
Ég vil njóta, ég vil sjá
það sem allir aðrir leita að en engin annar á.

Þó ég velji stundum langa leið,
sem er þyrnum stráð og sjaldan greið.
Næstum bugaður með slitna reim.
Þá samt liggur alltaf leiðin heim.

Ég vil syngja glaður hér.
Þó ég skemmti bara sjálfum mér.
Það er á meðan er.
Svona er lífið með sinn mátt.
Og það ber mig aftur heim á einhvern undraverðan hátt.

Þó ég velji stundum langa leið,
sem er þyrnum stráð og sjaldan greið.
Næstum bugaður með slitna reim.
Þá samt liggur alltaf leiðin heim.