From the recording Leiðin heim

Lyrics

Gamall, gugginn, grár.
Sem kafaldsbylur, kaldur bæði og sár.
Nú um langa hríð
háð hann hefur við sig sjálfan stríð.

Hann vonarneistann fann
þar sem mannvitsbrekkan brann.
Hún reyndist honum dýr.
Úr svartri ösku hrakinn nú hann snýr.

Nana nana na ó ó...

Sá sem hatar sjálfan sig
felur það með því að líta niður á þig.
Líttu á það sem lærdóm þinn
og kveddu á sama hátt og þú komst inn.

Gamall, gugginn, grár.
Reiður sér, fullur eftirsjár.
Geðið getur þína götu greitt
að sama skapi undir græna torfu leitt.