From the recording Leiðin heim
Lyrics
Eitt skref áfram.
Eitt afturábak.
Miðar ekkert áfram, bara stendur í stað.
Þolir ekki baráttuna dag eftir dag.
Vegurinn virðist vera lengri en hann er.
Haltu bara áfram og harkaðu af þér.
Þú áfram reynir á meðan þig dreymir.
Ekki gefast upp.
Efinn of sterkur í hjartanu er.
Þú hræðist það landslag sem blasir við þér.
Hræsnari myndi velja greiðari veg.
Lygin mun hörfa og hverfa á braut
ef leggur þú hendurnar ekki í skaut.
Þú finnur að...
Þú áfram reynir á meðan þig dreymir.
Ekki gefast upp.
Þó að lífið virðist eilíft böl og stríð,
þá rennur upp dagur er þú áttar þig á því.
Þú stendur hnarreistur.
Þig bugar ekki neitt.
Og ekkert getur því breytt.
