From the recording Leiðin heim
Lyrics
Hvert á nú að flýja í dag?
Ef þú lokar augunum þá kemst ekkert í lag.
Samviskan í skuggalíki er.
Sama hvað þú hleypur lengi áfram er hún hér.
Sama hvað þú reynir
og sama hvert þú ferð.
Ef þú horfir inn í sjálfan þig
þá veistu hvað þú sérð.
Það er engin manneskja í þessum heimi hér
sem hjálpar þér, ef þú hjálpar ekki sjálfum þér.
Leggðu frá þér kyndilinn nú.
Þú kemst ekki til baka ef þú brennir þessa brú.
Bráður maður brennir sig fljótt.
Þú veist ekki hvert hugur leitar allra næstu nótt.
Sama hvað þú reynir
og sama hvert þú ferð.
Mundu að horfa fram á við
þú ert á fullri ferð.
Það er engin manneskja í þessum heimi hér
sem hjálpar þér, ef þú hjálpar ekki sjálfum þér.
Hvert á nú að flýja í dag?
Ef þú lokar augunum þá kemst ekkert í lag.
Samviskan í skuggalíki er.
Sama hvað þú hleypur lengi áfram er hún hér.
Sama hvað þú reynir
og sama hvert þú ferð.
þá veist‘að þú átt hreina sál
af allra bestu gerð
Það er engin manneskja í þessum heimi hér
sem þarf að hjálpa þér, því þú kannt að hjálpa sjálfum þér.
