From the recording Leiðin heim
Lyrics
Faðir:
Það byrjar allt og endar hér.
Hingað kom og héðan aftur fer.
Þetta endalausa ferðalag.
Annar Máni, annað sólarlag.
Þessi Helga stund sem flýgur frá.
Líkt og Þrösturinn með sína þrá.
Og sama hversu hátt ég syng,
lífið gengur annan hring.
Dóttir:
Þegar lífsins leiðu vandamál
virðast raun fyrir litla sál.
Er hverju andartaki blásið líf
og í átt til þín ég aftur svíf.
Við tengjumst eins og sól og jörð.
Þú um gleði mína stendur vörð.
Og alltaf kát og glöð ég syng.
Lífið gengur annan hring.
